Fri Brevik kom í morgun

IMO 9190183. Fri Brevik ex Frisia Sky. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Flutningaskipið Fri Brevik kom til Húsavíkur í morgunsárið og lagðist að Bökugarði þar sem skipað er upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka.

Fri Brevik, sem siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limassol, var smíðað í Hollandi árið 2001.

Skipið, sem áður hefur borið nöfnin Frisia Sky og Polars Sky, er 89,25 metrar að lengd. Breidd skipsins er 13,4 metrar og það mælist 2,868 GT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd