Selma

Selma ex Njörður. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Þráinn Þráinsson siglir hér Selmu innan hafnar á Húsavík um árið og gott ef þetta er ekki Huginn Ágústsson bróðursonur hans sem situr út í stjór.

Selma, sem er tæplega tveggja tonna súgbyrðingur úr furu og eik, var smíðuð árið 1954 af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík.

Magnús Bjarnason og Anton Bjarnason, Húsavík áttu bátinn sem bar þá nafnið Bjarni Þórðar ÞH en hvort það er fysrsta nafn er ekki ljóst.

Ríkarður heitinn Ríkarðsson var áhugaljósmyndari mikill og myndað m.a smábáta.

Hann hélt út síðu um þetta áhugamál sitt.

Þar segir um Selmu í færslu frá árinu 2010:

Selma, Húsavík, var smíðuð um 1954 af Jóhanni Sigvaldasyni.  Maggi og Toni Bjarnasynir áttu bátinn og þá bar hann nafnið Bjarni Þórðar.  Kristján Óskarsson átti bátinn og rámaði í að Hallmar Helgason hafi átt bátinn og hann hafi keypt af honum

bátinn.  Næsti eigandi á eftir Kristjáni Óskarssyni var Guðlaugur Laufdal Aðalsteinsson.  Næsti eigandi var Jón Heiðar Steinþórsson, þegar hann keypti bátinn þá hét hann Njörður.  Segja má að Sigmar Mikaelsson hafi eignast hlut í bátnum er hann setti nýja vél í bátinn árið 1992-93 það var Sabb vél.

Núverandi eigendur eru bræðurnir Þráinn og Ölvar Þráinssynir.  Þeir eignuðust bátinn 1998.  Þeir endursmíðuðu gólfið í bátnum og klæddu það með riffluðu áli.  Vélin er SABB 6-8 hestöfl, árgerð 1963.  Slær ekki feilpúst segir Þráinn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd