Ásgeir ÞH 198

1790. Ásgeir ÞH 198 ex Kristján EA 178. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Ásgeir ÞH 198 hét upphaflega Kristján EA 178 og var smíðaður árið 1987 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri.

Eigandi Trausti Jóhannsson Akureyri.

Árið 1997 keypti Þórður Ásgeirsson bátinn til Húsavíkur og nefndi Ásgeir ÞH 198.

Báturinn var lengdur árið 2004 og mælist tæplega 11 brl. að stærð.

Ásgeir var gerður út frá Húsavik til ársins 2012, fyrst af Þórði og síðar tók Ásgeir sonur hans við.

Árið 2012 var báturinn seldur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Dalborg EA 317 og fjórum árum síðar var hann seldur til Skagastrandar.

Þar fékk hann nafnið Kambur HU 24 sem hann ber enn þann dag í dag.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd