
Brynja ÞH 295, sem hér sést á siglingu við Húsavík, hét upphaflega Hafrún EA 135 frá Hauganesi.
Báturinn, sem var um 2,5 brl. að stærð, var smíðaður árið 1959 af Svavari Þorsteinssyni skipasmið á Akureyri.
Frá Hauganesi fór báturinn til Húsavíkur árið 1970 og fékk nafnið Anna ÞH 295. Eigandi Sigurmundur Halldórsson.
Brynjunafnið fékk báturinn árið 1975 þegar Bjarni Siguróli Jakobsson keypti hann og bar það nafn það sem eftir var.
Báturinn var afskráður 23. desember 1998 en eigandi hans síðustu árin var Guðmundur Guðjónsson.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution