
Drangavík ST 160 hét upphaflega Bangsi RE 83 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði árið 1978.
Árið 1985 fékk báturinn, sem er rúmar 2 brl. að stærð, nafnið Drangavík HF 122.
Báturinn hefur frá árinu 1990 heitið Drangavík ST 60 með heimahöfn í Ingólfsfirði á Ströndum.
Myndin var tekin í Djúpuvík sumarið 2018 en báturinn var keyptur til Dalvíkur fyrir tveimur árum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution