Skotta HF 172

2140. Skotta HF 172 ex Imaq-Fisk GR 8-249. Ljósmynd Alfons.

Línuskipið Skotta HF 172 kemur hér til hafnar í Ólafsvík um árið og Fonsi fangaði hana á filmu.

Skotta var keypt til landsins frá Grænlandi árið 1991 og árið 1992 mátti ma. lesa eftirfarandi í 6. tbl. Ægis:

Nýtt fiskiskip bættist við flotann 15. maí á sl. ári, er Skotta HF 172 kom til heimahafnar sinnar, Hafnarfjarðar. Skip þetta, sem áður hét Imaq-Fisk, er keypt frá Grænlandi og er smíðað árið 1986 (afhent í janúar) hjá Solstrand Slip & Baatbyggeri A/S, Tomrefjord í Noregi, smíðanúmer 43. Skrokkur skipsins var smíðaður hjá Herfjord Slipp & Verksted A/S í Revsnes.

Skotta HF er annað skipið frá umræddri stöð í  Íslenska fiskiskipaflotanum, hið fyrra er línubáturinn Ásgeir Frímanns ÓF (sjá 11. tbl. ‘90). Á móti Skottu HF hverfa úr flotanum Már GK 55 (23), 101 rúmlests stálbátur, smíðaður í A-Þýskalandi árið 1960 og Sævaldur SH 219 (279), 9 rúmlesta furubátur smíðaður árið 1961. Auk þess hverfa úr rekstri tveir opnir bátar.
Skipið er tveggja þilfara frambyggt, sérbyggt
til línuveiða með línuvélasamstæðu og búið til heilfrystingar.
Skipið er í eigu Skottu hf., Hafnarfirði. Skipstjóri 
á skipinu er Gerðar Þórðarson og yfirvélstjóri Hallgrímurur Guðsteinsson. Framkvæmdastjóri útgerðar er Sigurður Aðalsteinsson.

Haukur Sigtryggur gerði eftirfarandi miða:

2140….Skotta HF 172…. TF-SV. IMO: 8511421.

Skipasmíðastöð: Solstrand Slip & Batbeggeri A/S. 1986. Skipasmíðastöð: Skrokkurinn. Herfjord Slipp & Verksted A/S. Revsnes. 1992 = BRL: 0. BT: 296. NT: 88. ML: 27,60. SL: 24,54. B: 8,00. D: 6,20. Mótor 1986 Callesen 575 hö.

Kom ný til Hafnarfjarðar 15.05.1991. Imaq-Fisk GR 8-249. Útg: Qulleg Aasiaat A/S. Grænlandi. (1986 – 1991). Seldur til Íslands 15.05.1991. Skotta HF 172. Útg: Skotta h.f. Hafnarfirði. (1991 – 1993). Skotta KE 45. Útg: Skelco h.f. Keflavík. (1993 – 1994).

Eldborg RE 22. Útg: Skelco h.f. Reykjavík. (1994 – 1996). Eldborg RE 22. Útg: K. G. h.f. Reykjavík. (1996 – 1996). Eldborg SH 22. Útg: Kristján Guðmundsson h.f. Hellisandi. (1996 – 1997).

Seldur úr landi – tekinn af skrá 09.05.1997.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd