
Einsi Jó GK 19 hét upphaflega Máni AK 73 og var smíðaður í Bátastöðinni Knörr ehf. á Akranesi árið 1987.
Árið 1988 fékk hann nafnið Hrólfur II RE 111 og það nafn bar hann í tíu ár en þá fékk hann nafnið Dagný ÍS 728 með heimahöfn á Ísafirði. Sama ár varð Dagný orðin AK aftur og nú 140.
Þessar heimildir eru fengnar af vefnum aba.is og þar segir að árið 2001 hafi báturinn fengið nafnið Mön SH 735 með heimahöfn í Grundarfirði. Ekki var nafnabreytingum lokið það ár því tvígang var breytt um nafn á bátnum áður en árið var úti.
Fyrst fékk hann nafnið Baddý II GK 177 með heimaöfn í Sandgerði og loks það nafn sem hann ber á myndinni.
Einsi Jó GK 19 er það eins og áður segir og var hann fyrst með heimahöfn í Sandgerði en síðar í Garðinum.
Árið 2003 fékk báturinn nafnið Hreggnes SH 173 með heimahöfn í Grundarfirði en frá árinu 2007 hefur báturinn heitið Herdís SH. 173 með heimahöfn Rif á Snæfellsnesi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution