
Frystitogarinn Júlíus Havsteen ÞH 1 kemur hér til hafnar á Húsavík eftir veiðferð á rækjuslóð.
Útgerðarfélagið Höfði á Húsavík keypti togarann frá Grænlandi árið 1995 og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar í janúarmánuði árið 1996.
Togarinn hét upphaflega Quaasiut II og var smíðaður árið 1987 fyrir Grænlendinga og fór smíðin fram í J.K Skibsbyggeri APS í Danmörku.
Ekki var Júlíus lengi í flota Húsvíkinga því hann var seldur Jökli h/f á Raufarhöfn sumarið 1997 og fékk nafnið Rauðinúpur ÞH 160.
Síðar Sólbakur EA 7, Sólbakur RE 207 og því næst Sóley Sigurjóns GK 200 sem er það nafn sem togarinn ber í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution