Hvalaskoðunarbáturinn Snorri

950. Snorri EA 317 ex Fríða RE 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009.

Hvalaskoðunarbátinn Snorri EA 317 frá Dalvík kemur hér til hafnar á Húsavík sumarið 2009 en Norðursigling hafði hann þá á leigu.

Báturinn var smíðaður 1964 í skipasmíðastöð KEA fyrir Hríseyinga og hét þá Farsæll II EA 130. Þeir voru tveir smíðaðir eftir þessari teikningu og sjósettir um leið. Venus EA 16 og Farsæll II og voru með smíðanúmer 99 og 100 hjá Skipasmíðastöð KEA. 

Gjarnan kallaðir tvílembingarnir en sögu þessara báta má lesa á síðu Árna Björns Árnasonar, aba.is

Snorri heitir í dag Lundi RE 20 og siglir með ferðamenn um Faxaflóa.

Báturinn var gerður út frá Húsavík á árum áður undir nafninu Svanur ÞH 100.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd