Eyjanes GK 131

462. Eyjanes GK 131 ex Guðrún Björg BA 31. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Eyjanes GK 131 hét upphaflega Glófaxi NK 54 og var smíðaður í Danmörku árið 1955 fyrir Sveinbjörn Á. Sveinsson í Neskaupstað. 

Hann átti bátinn til ársins 1969 en í desember það ár keypti Eskey h/f á Hornafirði bátinn. Og nefndi Eskey Sf 54.

Haustið 1982 fær báturinn nafnið Geir ÞH 150 þegar hann var keyptur til Þórshafnar.

Báturinn hét þessu nafni til ársins 1994 þegar hann var keyptur til Húsavíkur og fékk nafnið Guðrún Björg ÞH 60.

Haustið 1999 var báturinn seldur frá Húsavík og hét eftir það Guðrún Björg BA 31, Eyjanes GK 131 og síðasta nafn Brokey BA 336.

Brokey BA 336 var tekin af skipaskrá í árslok 2011 eftir að hafa legið um langa hríð í Reykjavíkurhöfn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd