
Hælsvík GK 350 hét upphaflega Bergur Pálsson EA 761 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1999. Heimahöfn Dalvík.
Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 28, var seldur til Grindavíkur árið 2001 þar sem hann fékk nafnið Hælsvík GK 350.
Árið 2006 fékk hann nafnið Sæunn Bjarna GK 260 og enn með heimnahöfn í Grindavík.
Árið 2009 fékk báturinn nafnið Martína, fyrst BA 25 með heimahöfn á Tálknafirði en síðar sama ár RE 25 með heimahöfn í Reykjavík.
Það var svo árið 2013 sem báturinn fékk nafnið Tjúlla KE 18 með heimahöfn í Keflavík. Það síðasta nafn hans á íslenskri skipaskrá því Tjúlla var seld til Noregs haustið 2016.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution