Búrfell KE 140

17. Búrfell KE 140 ex Búrfell ÁR 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Búrfell KE 140 var hér myndað af löngu færi um árið þegar síldveiðar voru stundaðar innan fjarða fyrir austan.

Upphaflega Ásbjörn RE 400, smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Noregi árið 1963.

Í árslok 1971 var Búrfellið selt Þorláksvör hf. í Þorlákshöfn og varð þá ÁR 40. Fjórum árum síðar kaupir Hafnarberg hf. í Þorlákshöfn bátinn en sumarið 1978 kaupir Saltver hf. í Keflavík hann og Búrfell verður KE 140. Heimild Íslensk skip

1991 er hann skráður Búrfell EA 930 í eigu Samherja en tekinn af skipaskrá 1992.

Eftir það dagaði báturinn uppi í Njarðvíkurhöfn og var í eigu Bergþórs Hávarðarsonar. Fékk sitt upphaflega nafn en var rifinn á Akranesi árið 2004.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd