Guðlaug SH 345

1611. Guðlaug SH 345 ex Dóra SH 345. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006.

Guðlaug SH 345 kemur hér að landi á Dalvík vorið 2006 en þá var nýbúið að kaupa bátinn norður.

Upphaflega Valur RE 7 sem var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði og afhentur frá stöðinni árið 1982.

Eins og segir í færslu um Val RE 7 fékk báturinn nafnið Særós RE 207 árið 1989. Þegar þarna var komið við sögu hafði báturinn borið nöfnin Egill BA 468, Ingibjörg SH 174, Dóra SH 345 og loks Guðlaug SH 345.

Báturinn var lengdur og breikkaður árið 1996.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd