
Nónborg BA 23 var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1988 og var með heimahöfn á Bíldudal.
Nónborg var skutlengd árið 1994.
Árin 2001 til 2005 hét hún Nóna GK 166 og var gerð út frá Grindavík.
Árið 2005 fékk báturinn nafnið Knolli GK 3 með heimahöfn í Garði en frá 2008 hefur Knolli verið BA 8 með heimahöfn á Reykhólum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution