
Kristján ÞH 5 var smíðaður af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík árið 1966.
Bátinn, sem var tvær brúttórúmlestir að stærð, smíðaði hann fyrir Helga Kristjánsson í Sæbergi sem átti Kristján til ársins 1993.
Þá eignaðist Höfði hf. bátinn og síðar Kristján Ásgeirsson.
Á seinni stigum eignaðist Aðalsteinn Júlíusson bátinn og gerði upp og nefndi Júllla.
Júlli var seldur suður snemma á þessari öld.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution