Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord í Noregi

Olavjenta TF-37-BD. Ljósmynd Trefjar 2023.

Útgerðarfélagið 2Fisk AS í Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Það eru feðgarnir Tor Øyvind og Øyvind Bolle sem standa að útgerðinni og verður Tor Øyvind skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn heitir Olavjenta og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 400hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða og er veiðibúnaður hans frá Noregi.

Lest bátsins rúmar 15 stk. 380 lítra fiskikör. 

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.

Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur þegar hafið veiðar.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd