Helgi Magnússon RE 41

1091. Helgi Magnússon RE 41 ex Helgi Magnússon BA 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Helgi Magnússon RE 41 var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Freyju á Bíldudal og hét upphaflega Helgi Magnússon BA 32.

Báturinn var 15 brl. að stærð og fór smíðin fram í Skipavík hf. Stykkishólmi árið 1969.

Frá Bíldudal var báturinn gerður út til ársins 1983 en þá verður heimahöfnn hans Reykjavík og einkennisstafir og númer RE 41.

Árið 1989 var báturinn seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Leó VE 400, ári síðar varð hann Hafbjörg VE 115.

Hafbjörg varð GK 58 árið 1995 með heimahöfn í Sandgerði og árið 1998 Hafbjörg ÁR 15.

Báturinn var tekinn af skipaskrá árið 2003.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd