Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember

Nýja hafrannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir. Lj. Stjórnarráðið.

Nýtt hafrannsóknaskip verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember nk.

Við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og fær það einkennisstafina HF 300. Skipið mun draga nafn sitt af Þórunni Þórðardóttur sem var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var m.a. frumkvöðull í rannsóknum á frumframleiðni smáþörunga í hafinu við Ísland. 

Eitt helsta afrek Þórunnar voru rannsóknir og mat á heildarfrumframleiðni svifþörunga á Íslandsmiðum en svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins. Þórunn var jafnframt á meðal fyrstu sjávarlíffræðinga til að nota geislakolsaðferð til að meta framleiðni í sjónum. Hún hlaut heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs Alþingis fyrir framlag sitt til rannsókna á hafinu við Ísland. Þórunn lést 11. desember árið 2007.

Lesa nánar hér.

Færðu inn athugasemd