
Haförn ÁR 115, sem hér sést koma til hafnar í Vestmannaeyjum, hét upphaflega Hoffell SU 80, smíðað í Noregi árið 1959.
Báturinn var í eigu Marvers hf. á Stokkseyri árin 1988-1995 og var hann yfirbyggður á þeim árum en hér má sjá hann hálfyfirbyggðan.
Eins og áður segir var hann upphaflega Hoffell SU 80 en síðar bar hann nöfnin Fagurey SH 237, Jórunn ÁR 237, Jón Jónsson SH 187, Haförn ÁR 115, Haförn SK 17 og að lokum Skálafell ÁR 50.
Fór í brotajárn 2014.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution