Ögmundur ÁR 3

261. Ögmundur ÁR 3 ex Jónas Guðmundsson SH 18. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Ögmundur ÁR 3 var smíðaður í Stálvík hf. árið 1964 og hét upphaflega Sæhrímnir KE 57.

Báturinn, sem var 176 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Jökuls hf. Keflavík en árið 1972 er hann kominn vestur í Ólafsvík. Við það varð Sæhrímnir SH 40 en árið 1976 fékk báturinn nafnið Jónas Guðmundsson SH 18.

Það nafn bar hann ekki lengi því síðar sama ár fékk hann nafnið Ögmundur ÁR 3 með heimahöfn í Þorlákshöfn.

Það nafn bar báturinn þegar hann var felldur af skipaskrá 7. júní 1985. Heimild aba.is

Það var Meitillinn hf. sem keypti bátinn og nefndi Ögmund ÁR 3 en hann var einn fimm báta í skipalest sem Sólbakur EA 5 lagði af stað með í eftirdragi til Englands haustið 1984.

Sólbakur og bátarnir áttu að fara í brotajárn en ekki vildi betur til en svo að Ögmundur slitnaði aftan úr lestinni við Færeyjar.

Á vefnum aba.is segir:

Varðskip sótti bátinn og dró hann til Hvalfjarðar og þaðan var honum slefað djúpt af Reykjanesi og sökkt þar 4. júní 1985.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd