
Grótta RE 26 hét upphaflega Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá en báturinn var keyptur til landsins frá Noregi árið 1971, þá þriggja ára.
Báturinn átti eftir aðð bera nöfnin Hegri KE 107, Heimir KE 77, Kópur ÁR 9 og Ársæll SH 88 áður en hann Gróttunafnið árið 1996.
Fyrstu tvö árin var Grótta HF 35 en fékk síðan skráningunar RE 26. Útgerð Haförn ehf. Seltjarnarnesi.
Í marsmánuði 1998 kom Grótta RE 26 úr miklum breytingum sem framkvæmdar voru í Póllandi og mátti í raun segja að um nýtt skip væriað ræða.
Árið 2002 fær báturinn nafnið Leifur Halldórsson SH 217 og tveimum árum síðar er hann orðinn Draupnir ÁR 21 sem var hans síðasta nafn.
Seldur til Rússlands árið 2007 þar sem hann varð Draupnir M-0421 með heimahöfn í Murmansk. Seldur í brotajárn árið 2011.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution