Rún EA 351

2711. Rún EA 351 ex Særún EA 251. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Í ágústmánuði sl. birtust myndir af Rún EA 351 koma til hafnar á Árskógssandi en nú birtast myndir sem sýna hana koma að landi á Dalvík.

Myndirnar teknar sama dag.

Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði. 

Síðar, eða árið 2011, fær hann nafnið Maggi Jóns KE 77 og 2015 Elli P SU 206 frá Breiðdalsvík.

Haustið 2018 var Særún EA 251 (2651) seld til Breiðdalsvíkur og Sólrún ehf. á Árskógssandi tók Ella P upp í kaupin. Við það fékk báturinn nafnið Særún EA 251.

Þegar ný Særún var keypt í vor fékk þessi nafnið Rún EA 351.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd