Sigurvík VE 700

7. Sigurvík VE 700 ex Freyr VE 700.Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Sigurvík VE 700 var gerð út af Eyjavík hf í Vestmannaeyjum um þriggja ára skeið.

Fyrirtækið kaupir bátinn, sem þá hét Freyr VE 700, í maílok 1991 og fékk hann þá nafnið Sigurvík VE 700.

Sigurvík var seld 15 apríl 1994 Goðaborg h/f í Vestmannaeyjum og fékk nafnið Stokksnes VE 700.

Báturinn hét upphaflega Anna SI 117 og smíðaður í Zaandam í Hollandi árið 1960 fyrir Þráinn Sigurðsson útgerðarmann á Siglufirði. 

Sögu bátsins má lesa hér.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd