
Anna SH 122 lætur hér úr höfn í Vestmannaeyjum en hún var gerð út af Rækjunesi hf. í Stykkishólmi.
Anna var upphaflega SI 117 og smíðuð í Zaandam í Hollandi árið 1960 fyrir Þráinn Sigurðsson útgerðarmann á Siglufirði.
Anna SI 117 var 150 brl. að stærð búin 500 hestafla Kromhout díesel vél.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution