
Reknetabáturinn Þórir SF 77 er hér í höfn á Vopnafirði um árið og liggur utan á Frey SF 20 sem liggur utan á Lyngey SF 61.
Báturinn var smíðaður í Stálvík 1972 og hét upphaflega Þórir GK 251 og var í eigu samnefnds fyrirtækis. Hann var 105 brl. að stærð en eftir lengingu ári síðar mældist hann 125 brl. að stærð.
Þórir var seldur til Hornafjarðar árið 1978 og varð SF 77. Kaupendur voru Eiríkur Þorleifsson og Sæmundur Sigurðsson.
Upphaflega var 565 hestafla Caterpillarvél í bátnum en árið 1983 var skipt um aðalvél og 750 hestafla Caterpillar kom í stað þeirrar fyrri.
Þinganes hf. á Höfn keypti bátinn árið 1985 og hélt hann nafni sínu. Hann var yfirbyggður árið 1986.
Árið 1996 var báturinn seldur til Skagastrandar þar sem hann fékk nafnið Ólafur Magnússon HU 54.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution