
Togbáturinn Sigurborg SH 12 kom til löndunar á Grundarfirði síðdegis í gær og tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 þessamynd.
Það er FISK Seafood ehf. sem gerir Sigurborgina út og samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins var aflinn um 73 tonn.
Sigurborg var m.a. á veiðum á Látragrunni og uppistaða aflans er ýsa, þorskur og karfi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution