
Jökull ÞH 299 kom til hafnar á Húsavík fyrir helgi og hefur nú lokið grálúðunetaveiðum í bili og skipt verður yfir á línuna.
Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar.
Hann er útbúinn til línu- og netaveiða og gerður út af GPG Seafood á Húsavík. Heimahöfn Jökuls er á Raufarhöfn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.