
Gulltoppur SH 174, sem hér sést í Hafnarfjarðarhöfn, hét upphaflega Haförn EA 155 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA árið 1961.
Báturinn, sem var 21 brl. að stærð, var gerður út frá Hrísey í tólf ár en var þá seldur til Siglufjarðar þar sem hann fékk nafnið Guðrún Jónsdóttir SI 155.
Árið 1979 var báturinn seldu suður í Voga eftir átján ára útgerð á Norðurlandi. Þar suður frá fékk hann nafnið Gulltoppur GK 321.
Síðar bar hann nöfnin Gulltoppur HF 321, Gulltoppur SH 174 og síðar SH 474, Toppur SH 474, Sæborg KE 75 og loks Sæborg BA 77.
Samkvæmt aba.is var báturinn seldur úr landi og afskráður í marsmánuði árið 1995.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution