
Hornfirski reknetabáturinn Freyr SF 20 er hér að landa síld til söltunar á Vopnafirði um árið.
Freyr, sem var 105 brl. að stærð, var smíðaður í Stálsmiðjunni í Reykjavík árið 1972 fyrir Keflavík hf. í Keflavík. Hann kom til heimahafnar í lok árs.
Freyr var KE 98 til ársins 1978 en þá um sumarið var hann seldur Skinney hf. á Hornafirði og varð SF 20. Báturinn var yfirbyggður upp úr 1990.
Vorið 1995 var Freyr seldur til Skotlands og hafði þá verið SF 40 um tíma. Eða frá því að Jóna Eðvalds kom til heimahafnar í upphafi sama árs og fékk SF 20.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution