Björn Jónsson ÞH 345

7461. Björn Jónsson ÞH 345 ex Arnar SH 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Sómabáturinn Björn Jónsson ÞH 345 hét upphaflega Jói á Nesi II SH 259 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar fyrir Pétur F. Karlsson í Ólafsvík.

Það var árið 1998 og árið 2006 var báturinn lengdur.

Í ársbyrjun 2012 er báturinn kominn með nafnið Arnar II SH 557 eftir að hafa verið seldur í Stykkishólm. Eigandi Útgerð Arnars ehf.

Það var svo í árslok 2019 sem Útgerðarfélagið Röðull ehf. á Raufarhöfn, sem Einar Sigurðsson stendur að, keypti bátinn og nefndi Björn Jónsson ÞH 345. Báturinn hafði árið á undan eða svo borið nafnið Arnar SH 157.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd