
Blær ÞH 60 hét upphaflega Hafdís SK 147 og var smíðuð árið 1980 af Hermanni Þorgrímssyni á Hofsósi.
Báturinn, sem er rúmlega 4 brl. að stærð, var lengst af með heimahöfn á Hofsósi en árið 2008 fékk hann nafnið Hrappur SK 121.
Það nafn bar hann til ársins 2016 að hann varð Blær SH 131 með heimahöfn í Stykkishólmi. Árið 2018 var komið ÁR 2 á Blæ og heimahöfn hans Þorlákshöfn.
Það var svo árið 2020 sem báturinn kom til Raufarhafnar og hann skráður ÞH 60.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution