Ný Cleopatra 33 til Frakklands

Circle D’Or SN 937536. Ljósmynd Trefjar 2023.

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nýlega Cleopatra 33 bát til Le Croisic á vesturströnd Frakklands.
Að útgerðinni stendur David Le Dreau sem einniger skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Circle D’Or eða Gullni hringurinn sem er hnýttinn tilvísun í gullna hringinn á Íslandi. 

Circle D’Or er af gerðinni Cleopatra 33 og er 11 BT að stærð.

Aðalvél Circle D’Or af gerðinni Cummins QSC8.3M tengd ZF286IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno og Simrad og öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12 stk. 380 lítra kör í lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn mun stunda jöfnum höndum veiðar með línu, netum og gildrum og að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Le Croisic allt árið, 

Reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna seinni hluta ágúst. 3 menn verða í áhöfn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd