
Andvari kemur hér úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í kvöld en það er Norðursigling sem gerir bátinn út.
Andvari, sem er skrokkfallegur bátur, var smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri 1975 og hét upphaflega Vinur SH 140.
Norðursigling eignaðist bátinn árið 2012 en hann hafði sokkið eftir að siglt var á hann við bryggju í Sandgerði haustið 2011.
Bátnum var náð á flot og upp í slipp þar sem allt var rifið af honum ofan þilfars og ekkert beið hans nema förgun.
Vorið 2012 dró Knörrinn Sölku norður til Húsavíkur og rúmum fjórum árum síðar hóf hann siglingar á Skjálfanda eftir að hafa verið endurbyggður sem rafknúinn hvalaskoðunarbátur.
Andvari er 30 brl. að stærð en nánar má lesa um bátinn hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.