
Skemmtiferðaskipið Renaissance kom til Húsavíkur í morgunsárið og stafalogn á Skjálfanda.
Skipið siglir undir fána Mermuda og er með heimahöfn í Hamilton.
Renaissance var smíðað á Ítalíu árið 1993 og hét áður Agean Myth og þar áður Maasdam.
Skipið hefur komið hingað áður er það hét Maasdam og var þá stærsta skip sem lagst hefur að bryggju á Húsavík.
Lengd þess er 220 metrar, breiddin 30 metrar og það mælist 55,575 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.