Le Boreal á Skjálfanda

IMO 9502506. Le Boreal. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Skemmtiferðaskipið Le Boreal siglir hér út Skjálfanda í gær eftir viðdvöl á Húsavík.

Le Boreal er er í eigu franska skipafélagsins PONANT og var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2010.

Það er 140 metrar að lengd, 18 metra breitt og mælist 10.944 GT að stærð.

Le Boreal siglir undir fána Frakklands og er með heimahöfn í Matautu, sem er ef ég skil rétt á, Wallis- og Fútúnaeyjum í Suður Kyrrahafi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd