Azmara Journey

IMO: 9200940. Azmara Journey. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Skemmtiferðaskipið Azmara Journey lét úr höfn á Akureyri og sigldi sem leið lá til Húsavíkur. Þegar þangað var komið, eða því sem næst, snéri skipið við og sigldi áleiðis austur fyrir land.

Azmara Journey er 30,277 GT að stærð og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta.

Lengd skipsins, sem smíðað var árið 2000, er 181 metrar og breidd þess tæpir 25,46 metrar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd