Seifur

2955. Seifur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Hér leggur hafnsögubáturinn Seifur upp í Sjómanndagssiglinguna á Akureyri 4. júní sl. en hann og Húni II fóru fyrir henni.

Seifur var smíðaður á Spáni árið 2018 og mælist 195 BT að stærð. Lengd hans er 22 metrar og breidd 9 metrar.

Hann er með 3,244 hestafla Cummins aðalvél og togkraftur bátsins er 42 tonn. Heimild port.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd