
Hér birtist myndasyrpa sem Jón Steinar tók í fyrradag þegar strákarnir á Sturlu GK 12 renndu sér inn til Grindavíkur á leið sinni hér eitthvað vestur með Reykjanesinu.
Erindið var að sækja sér par af bobbingum. Þeir héldu út strax aftur en til gamans má geta þess að þetta er jómfrúartúr sem skipstjóri hjá Páli Árna Péturssyni ungum Grindavíkurpeyja.
Sturla er smíðaður árið 2007 í Gdynia í Póllandi fyrir Berg-Huginn og hét upphaflega Vestmannaey VE 444.









Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution