
Einar í Nesi EA 49 er hér á siglingu á Sjómannadaginn en upphaflega hét báturinn Gaui Gísla GK 103.
Hann var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun árið 1988 og var með heimahöfn í Garði.
Árið 1992 fékk báturinn nafnið Ármann GK 203 og var gerður út frá Sandgerði.
Það var svo árið 1994 sem hann fékk nafnið Einar í Nesi EA 49 hann var rannsóknarbátur í eigu Hafrannsóknarstofnunar til ársins 2018.
Núverandi eigandi er Blíðfari ehf. á Akureyri og samkvæmt skipaskrá ber hann nafnið Tryggvi Sveins EA 49 og er með heimahöfn í Grímsey.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.