
Skemmtiferðaskipið Frontier Spirit, sem er hér við bryggju á Húsavík snemma á tíunda áratug síðustu aldar, kom hingað á dögunum en skipið ber í dag nafnið Seaventure.
Frontier Spirit var smíðað í Japan árið 1990 og hét þessu nafni fyrstu þrjú árin en síðan Bremen til ársins 2020.
Það mælist 6,752 GT að stærð, lengd þess er 111,15 metrar og breiddin 17 metrar.
Skipið hefur komið til Húsavíkur undir þessum þrem nöfnum en lesa má nánar um skipiuð hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution