Hanseatic spirit

IMO: 9857640. Hanseatic spirit. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson2023.

Skemmtiferðaskipið Hanseatic spirit kom í gæmorgun og lagðist á krókinn eins kallað er.

Skipið er eitt þriggja systurskipa smíðuð hjá VARD Group AS í Noregi. Hin eru Hanseatic nature og Hanseatic inspiration sem kom hingað á dögunum. Skipin taka allt að 230 farþega.

Hanseatic spirit var afhent árið 2021 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valetta.

Skipið er 138,78 metrar að lengd, breidd þess er 22 metrar og það mælist 15,651 GT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd