
Sirrý EA siglir hér á Akureyrarpolli sl. sunnudag en báturinn tók þátt í skemmtisiglingu Sjómannadagsins.
Saga bátsins, sem smíðaður var í húsakynnum Nóa Kristjánssonar, skipasmiðs árið 1968 af Rögnvaldi Árnasyni, húsgagnasmiði Akureyri og syni hans Þorkeli, er býsna löng og er ítarlega farið yfir hana á vefnum aba.is.
Sirrý er í eigu Ívars Baldurssonar skipstjóra á Akueyri en á árunum 1970 – 1994 var báturinn gerður út frá Húsavík.
Þórarinn Vigfússon og Hjálmar Friðgeirsson keyptu hann árið 1970 og nefndu Vin ÞH 73. Sigurður Sigurðsson skipstjóri, Siggi Stýssi kallaður, keypti Vininn árið 1975 og átti til ársins 1992. Bar hann nafnið Vinur II ÞH 371 síðasta árið.
Þórður Haraldsson keypti Vininn árið 1992 og fékk báturin nafnið Borg ÞH 55. Sigurður A. Hákonarson keypti Vininn ári síðar og nefndi Sæborgu ÞH 55.
Sæborg var seld vestur í Stykkishólm árið 1994 þar sem báturinn fékk nafnið Gústi P SH 35.
Heimildir eru fengnar af vefnum aba.is en hér má lesa nánar um bátinn.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution