Nói EA 611

5423. Nói EA 611 ex Lórenz EA 611. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Nói EA 611 var einn af mörgum bátum sem voru í samfloti með Húna II EA 740 í skemmtisiglingu um Akureyrarpoll í dag, Sjómannadag.

Nói er 4 brl. súðbyrðingur smíðaður úr furu og eik. Smíðaár hans er 1974 og smíðastaður Akureyri. Upphaflega hét hann Lórenz EA 611.

Nói EA 611 er í eigu Davíðs Haukssonar.

Á vef Árna Björns Árnasona má lesa allt um bátinn sem Magnús Lórenzson smíðaði.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

1 athugasemd á “Nói EA 611

Færðu inn athugasemd