
Piera Gaup útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Piera verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem ber nafnið Barent Gadus.
Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. Hann leysir af hólmi eldri Cleopatra 36 bát sem útgerðin hefur rekið frá árinu 2014.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 520hö tengd ZF325IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til Línu og netaveiða og kemur veiðibúnaðurinn frá Noregi.
Lest bátsins rúmar 15 stk. 380 lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn er á leið til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar í lok júní.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution