
Hefð er fyrir því í Grindavík að Sjómannafélag Grindavíkur og útgerðarmenn þar í bæ bjóði gestum og gangandi í skemmtisiglingu í tilefni af sjómannadeginum.
Í ár bauðst gestum að sigla með Vísisbátunum Páli Jónssyni GK 7 og Sighvati GK 57 og samkvæmt ljósmyndaranum viðraði vel á mannskapinn og gleði skein úr andlitum fólks jafnt ungum sem öldnum.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution